Ég er með æði fyrir hringtreflum. Er búin að gera þrjá á síðustu vikum. Gerði tvo úr Abuelita Merino Worsted og einn úr Fyberspate Scrumtious DK. Þeir eru allir æðislegir.
Mig er búið að vanta hlýjar og góðar grifflur í hlutlausum litum. Ég veit eiginlega ekki hvers vegna ég er búin að draga það svona lengi að prjóna mér. Ég lét allavega loksins vaða í þessar og er mjög sátt. Gott að eiga svona og skella t.d. yfir leðurhanska á köldum degi. Uppskriftin er mín eigin og garnið er léttlopi á prjóna nr 4.
Ég prjónaði mér yndislegan hringtrefil úr Abuelita Merino Worsted úr Handprjón.is. Hann er prjónaður með klukkuprjóni á prjóna nr. 6 og er svo yndislega mjúkur og hlýr. Fer varla út án hans þessa dagana.