Þetta er mjög einfalt trix. Þegar maður skiptir um lit prjónar maður fyrstu umferðina af nýja litnum eins og venjulega. Svo þegar maður kemur að fyrstu lykkjunni í annari umferð þá tekur maður fyrstu lykkjuna óprjónaða og prjónar síðan áfram eins og ekkert hafi í skorist. Auðvitað sést alltaf smá en ekki nærri því eins mikið og þegar maður sleppir þessu.

Þekki líka aðra sniðuga aðferð sem er að prjóna umferðina í nýja litnum og þegar kemur að því að prjóna fyrstu lykkjuna í þeim lit í næstu umferð að taka þá upp lykkjuna fyrir neðan í gamla litnum og prjóna þær saman. Kallast jogless knit ef þú googlar það.
ReplyDeleteKveðja, Dóra (ókunnug)