Saturday, May 8, 2010

Crochet steeking - Opin lopapeysa en engin saumavél



Ég rakst á þessa aðferð við að gera opnar peysur um daginn og fannst algjör snilld. Ég hata að sauma kantinn í saumavél, finnst alltaf eins og hann verði stífur og ómögulegur.

Allavega þá beið ég ekki boðanna og skellti í eina opna lopapeysu.

Það fyrsta sem maður þarf að hugsa um er að gera ekki tvær brugnar upp bolinn heldur 3-7 sléttar í staðin. Það verður að vera oddatala og ég myndi frekar velja 5-9 heldur en 3. Sem sagt, ef uppskriftin segir að fitja eigi upp 155 lykkjur fyrir bolinn þá myndi maður t.d. fitja upp 160 og þá væru 5 aukalykkjur sem væru þá í upphafi/lok umferðar og myndu tákna miðjuna framaná (bara alveg eins og þegar maður gerir tvær brugnar).

Síðan prjónar maður bara eftir uppskrift eins og venjulega. Það eina sem maður þarf að passa er að í munstrinu verður maður að prjóna aukjalykkjurnar þannig að þær verði röndóttar þ.e. ein lykkja í lit A og svo ein í lit B o.s.frv. (sést betur á myndunum). Þetta er gert til þess að engir langir spottar liggi bakvið lykkjurnar þar sem maður klippir.

Svo þegar búið er að prjóna, ganga frá endum og það allt þá byrja skemmtilegheitin:



Fyrst finnur maður miðjulykkjuna af aukalykkjunum og heklar fastapinna í helminginn af henni og helminginn af næstu lykkju alla leiðina niður (eða upp). Síðan gerir maður það sama við hinn helminginn og lykkjuna hinumegin. Ég mæli reyndar með því að skoða www.eunnyjang.com/knit/2006/01/the_steeking_chronicles_part_i.html
til að fá betri og nákvæmari útskýringu á þessu.



Ég notaði léttlopa og litla nál til að hekla en peysan er úr þreföldum plötulopa. Ég las einhverstaðar að það væri betra að nota fínna garn ef maður getur. Maður verður bara að passa að garnið geti þæfst.



Þegar maður er búinn að hekla báðu megin þá er bara klippt á milli.



Að lokum brettir maður kantinn inn og heklar annan kant eða saumar rennilás beint í. Það er út af þessu sem það er betra að hafa fleiri en 3 aukalykkjur. Þá verður breiðari kantur inni í peysunni sem mér finnst bæði fallegra og öruggara upp á að ekkert rakni upp.



Peysan mín hefur ekki enn raknað upp. Ég setti rennilás í hana og finnst þetta bara æði.

19 comments:

  1. Til hamingju með bloggið þitt - gaman að sjá íslenskt blogg! Ég er spennt að prófa þessa aðferð líka með kantinn.

    ReplyDelete
  2. takk fyrir að setja þetta fram svona myndrænt. ég ætla að nota þessa aðferð næst þar sem það er alltaf að rakna upp hjá mér því ég er með lélega saumavél

    ReplyDelete
  3. Sæl, sniðug aðferð, takk fyrir upplýsingarnar. Mætti ég nokkuð spyrja úr hvaða blaði þetta munstur er. Mjög flott peysa hjá þér:)
    kv.Selma

    ReplyDelete
  4. Heyrðu þetta er bara mitt eigið munstur :)

    ReplyDelete
  5. frábært.. ég ætla að prófa þetta á næstu peysu hjá mér!

    ReplyDelete
  6. Sigrún ÁsgeirsdóttirOctober 12, 2011 at 9:59 PM

    Hæhæ og takk fyrir þessa frábæru kynningu. ÉG ætla að prufa þetta á næstu opnu peysu sem ég geri.. ;O)

    ReplyDelete
  7. Þett er algjör snilld, prófa þetta næst, á maður örugglega að þora að klippa?

    ReplyDelete
  8. þetta er ekkert smá sniðugt, ég bjó til prufu og þetta er svo einfalt :) takk æðislega fyrir að setja þetta hér á bloggið þitt, núna verða peysurnar einfaldari þar sem ég á ekki saumavél, verst bara að ég sá þetta ekki fyrr en að ég var hálfnuð með peysuna sem ég er að gera núna, helduru að það sé hægt að hekla svona á röngunni þar sem að ég gerði brugðnar lykkjur í miðjunni ??

    kveðja, Sara

    ReplyDelete
  9. Hæhæ, já það er örugglega alveg hægt sko.

    ReplyDelete
    Replies
    1. takk, frábær aðferð, nota hana næst og svo aftur og aftur
      kv.
      Sirrý

      Delete
  10. Þetta er frábær hugmynd og leysir mörg vandamál :) ætla að gera þetta næst þegar ég prjóna opna peysu :)

    ReplyDelete
  11. mig langar svo að vita þarf peysan að vera á röngunni til að gera þetta ? ef það eru brugnar lykkjur :D

    ReplyDelete
  12. Flott .,., hvaða uppskrift er á þessari peysu .,., er svo hrifinn af litasamsetningunni ;)

    ReplyDelete
  13. Er ekki hægt að nota þessa aðferð ef maður vill gera peysu ur garni sem þæfast ekki ? Eins og t.d peysu á ungabarn

    ReplyDelete
  14. Takk kaerlega, èg hef gert svipad en ekki alveg eins. Aetla pottþett ad gera þessa adferd naest. Èg hef fundist hraedilegt sù venjulega adferd ad sauma upp kantana ì saumavel.

    ReplyDelete
  15. Fallegur frágangur en ég skil ekki hvernig þú setur bandið inn í kantinn til að draga saman. Þræðir þú það bara í á eftir ?

    ReplyDelete
  16. Ég hlakka til að prófa þessa aðferð, en ég var líka að spá í hvort þú hafir prófað þetta á opna peysu úr td. Acrilgarni ?

    ReplyDelete